{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú eru 123 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, samkvæmt samantekt lögreglu, 33 færri en í gær. Í sóttkví í landshlutanum eru 111. Mest munar um fækkun í einangrun á Akranesi þar sem 100 eru nú í einangrun og 84 í sóttkví. Í Borgarnesi eru tíu í einangrun og annar eins fjöldi í Grundarfirði. Loks eru tveir í einangrun í Snæfellsbæ og einn í Dölum.\r\n\r\nÁ landsvísu voru 139 greindir með Covid í gær og þar af þrír á landamærunum. Veiran er því á hægu undanhaldi á landsvísu, en hröðu undanhaldi hér á Vesturlandi.",
"innerBlocks": []
}