
Íslenskt hvalkjöt í kjötborði verslunar í Sendai í Japan. Ljósm. jlr
Íslenskt hvalkjöt selt í kjötborði í Japan
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borgnesingurinn Jóhann Lind Ringsted býr ásamt konu sinni Ayaka og dótturinni Hönnu í hafnarborginni Sendai í norðurhluta Japan og starfar þar sem kennari. Fjölskyldan kaupir stundum í matinn á markaði sem staðsettur er við höfnina í Sendai. Hluti markaðarins er fiskmarkaður sem tengist beint við höfnina og hefur á boðstólnum nýtt sjávarfang. Verslunin er nýleg og ekki langt frá þar sem Jóhann og fjölskylda býr. Fyrir tíu árum var ekkert á þessum slóðum því allt hafði sópast burt í flóðbylgjunni sem varð í Kyrrahafi 2004. Hverfið hefur verið hægt og rólega að byggjast upp síðastliðin tíu ár.\r\n\r\nÁ ferð sinni um markaðinn rákust Jóhann og kona hans nýlega á plakat sem auglýsti hvalkjöt. Þegar hann skoðaði málið nánar fann hann í kjötborði markaðarins hvalkjöt sem greinilega var merkt íslenskt. Jóhann segir að ekki hafi komið fram á umbúðunum hvers konar hval væru um að ræða en honum skildist að um væri að mjög gott stykki af hvalnum en ekki gúllas stykki eins og væru stundum seld á Íslandi og í Noregi.\r\n\r\nJóhann sagði í samtali við Skessuhorn að þetta væri ekki í eina skiptið sem hann hefur rækist á íslenskar vörur í verslunum í Japan. Hann segir að Ísey skyr hafi komið á markað í Japan fyrir einu til tveimur árum og Jóhann segist reglulega sjá Ísey skyr í verslunum. Lambakjöt segist hann hins vegar aðeins hafa séð einu sinni í Japan en það var þegar lambið var kynnt í verslun Costco í Japan fyrir nokkrum árum.\r\n\r\nJóhann segir að hvalkjöt hafi sérstakt gildi meðal Japana, sérstaklega þeirra sem eldri eru og voru fæddir á eftirstríðsárunum og muna kreppuna sem ríkti í þar í landi eftir stríð. „Ég hef engan hitt í Japan sem sér eitthvað athugavert við hvalkjöt. Fyrrum yfirmaður minn talar um að þegar hann var ungur strákur þá var nánast alltaf hvalkjöt í matinn í skólum og það var hvalkjöt sem bjargaði Japönum í gegnum eftirstríðsárin, hvalkjötið var það mikilvægt. Ég hef borðað hval nokkrum sinnum síðan ég kom til Japan og bragðast kjötið ágætlega,“ segir Jóhann að lokum.",
"innerBlocks": []
}