Fréttir

true

Nýtt skipurit kynnt á neyðarfundi Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hélt neyðarfund í Grunnskólanum í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag þar sem framtíð deildarinnar var rædd og sömuleiðis biðlað til íbúa og stuðningsfólks Skallagríms almennt um fleiri hjálparhendur. Um 50 manns mættu á fundinn og fóru forsvarsmenn deildarinnar yfir stöðu mála; sjálfboðaliðastarf og nauðsynlega fjárþörf vegna tímabilsins sem nú er hafið en illa hefur gengið…Lesa meira

true

María Kristín ráðin verkefnastjóri vegna Rannsóknaseturs skapandi greina

María Kristín Gylfadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra vegna rannsóknaseturs skapandi greina við Háskólann á Bifröst. Rannsóknarsetrið var sett á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Háskólans á Bifröst er starfsferill Maríu rakinn. Þar segir að hún hafi starfað í meira en tvo áratugi við menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknartengd verkefni.…Lesa meira

true

Útskriftarnemar FVA gróðursettu trjáplöntur

Útskriftarnemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi settu niður nokkur tré ásamt meðlimum úr Skógræktarfélagi Akraness, á miðvikudaginn í síðustu viku. Nemendurnir höfðu síðastliðið vor safnað peningum til að kaupa plönturnar en gróðursettar voru nokkrar tegundir af trjám, til dæmis fura, alpareynir, gráelri og fleira. „Búið er að kolefnisjafna örlítið og svo ætlum við að fylgjast…Lesa meira

true

Göngustíg lokað frá Merkigerði að Brekkubæjarskóla

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir á Sjúkrahúsi Akraness. Núna er verið að rífa þakið á sjúkrahúsálmunni sem er næst Brekkubæjarskóla og á að byggja þar eina hæð ofan á fyrir nýja skurðstofu. Þessum framkvæmdum fylgir tilheyrandi slysahætta fyrir nemendur skólans sem og aðra vegfarendur. Til að tryggja sem best öryggi gangandi vegfarenda hefur göngustígnum sem…Lesa meira

true

Kynningarfundur á uppbyggingu LazyTown í Borgarnesi

Miðvikudaginn næstkomandi, 13. október, verður kynningarfundur á uppbyggingu LazyTown studio í Borgarnesi. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti og hefst klukkan 19. Forsvarsmenn Upplifunargarðs Borgarness ehf. hafa unnið að undirbúningi fyrir uppbyggingu LazyTown studio í Borgarnesi. Munu þeir, ásamt Margréti Katrínu Guðnadóttur, kaupfélagsstjóra Kaupfélags Borgfirðinga, kynna hugmyndir sem uppi eru um uppbyggingu húss á lóðinni við…Lesa meira

true

Grunnskólanemendur gróðursettu birkiplöntur

Grunnskóli Snæfellsbæjar fékk nýverið birkiplöntur að gjöf frá Yrkjusjóði en skólinn var einn þeirra skóla sem tók þátt í verkefni á vegum ríkisins sem ætlað er að vega á móti loftslagsbreytingum. Meðal þeirra verkefna er aukin skógrækt og landgræðsla þar sem markmiðið er að binda kolefni í jarðvegi og gróðri ásamt endurheimt og bætingu hnignaðra…Lesa meira

true

Stigalausar eftir tvær umferðir

Meistaraflokkur kvenna í Skallagrími þurfti að sætta sig við 70:92 tap gegn Valsstúlkum frá Reykjavík þegar liðin mættust í annarri umferð Subway deildar kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímsstúlkur spiluðu án hinnar amerísku Shakeya Leary, en unnið er hörðum höndum í herbúðum Skallagríms við að fá leikheimild fyrir miðherjann. Að sama skapi spiluðu…Lesa meira

true

Ný hafnarmannvirki sögð forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri

Vegagerðin hefur lagt mat á möguleika varðandi ferjusiglingar á Breiðafirði næstu misseri. Í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að niðurstaðan sé sú að hagkvæmast er að uppfylla núverandi samning og nota gildistíma hans til hönnunar og útboðs á hafnarmannvirkjum á Brjánslæk og í Stykkishólmi. Ný hafnarmannvirki eru forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri á Breiðafirði. „Þrátt fyrir…Lesa meira

true

Northern Wave kvikmyndahátíðin í Rifi síðar í október

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave fer fram í þrettánda sinn helgina 22.-24. október næstkomandi í Frystiklefanum í Rifi. Hátíðin er ein elsta kvikmyndahátíð landsins og hefur nú náð táningsaldri. Að sögn Daggar Mósesdóttur átti hátíðin að fara fram á sama tíma á síðasta ári en var frestað um ár vegna heimsfaraldursins. Heiðursgestur á hátíðinni í ár…Lesa meira

true

Skallagrímur laut í lægra haldi fyrir Hamri

Skallagrímsmenn fóru yfir heiðina í gærkvöldi og léku gegn ísmönnunum í Hamri frá Hveragerði í 1. deild karla í körfuknattleik. Fyrsti leikhluti byrjaði fjörlega, nánast jafnt á öllum tölum en Skallarnir skoruðu fimm síðustu stigin og staðan 15:20 gestunum í vil. Skallagrímur hélt forystunni nánast allan annan leikhlutann en frekar lítið var um stigaskor. Leikmenn…Lesa meira