María Kristín ráðin verkefnastjóri vegna Rannsóknaseturs skapandi greina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "María Kristín Gylfadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra vegna rannsóknaseturs skapandi greina við Háskólann á Bifröst. Rannsóknarsetrið var sett á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Háskólans á Bifröst er starfsferill Maríu rakinn. Þar segir að hún hafi starfað í meira en tvo áratugi við menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknartengd verkefni.\r\n\r\n„Frá árinu 2018 rak María svo eigið ráðgjafarfyrirtæki, NORTH Consulting, sem sérhæfir sig í stuðningi við sprotafyrirtæki og aðila í menntun, menningu og rannsóknum vegna samskipta við styrktarsjóði, stefnumótunar, breytingastjórnunar, þróunar námsefnis og þjálfunar í frumkvöðlafræðum,“ segir á vef Háskólans á Bifröst. María var menningarfulltrúi Sendiráðs Íslands í Washington DC árin 1999-2000. Hún tók þátt í uppbyggingu MBA náms við Háskólann í Reykjavík auk þess sem hún kenndi Evrópufræði við skólann frá árinu 2000-2003. Frá árinu 2003-2018 starfaði hún fyrir menntaáætlanir ESB og á árunum 2009-2013 var hún útsendur sérfræðingur íslenskra stjórnvalda hjá framkvæmdasjóði ESB í Brussel. María hefur lokið meistaragráðu í Evrópufræðum frá Georgetown háskóla í Washington DC auk þess sem hún lauk MBA gráðu í rekstrarhagfræði frá Háskóla Íslands.",
  "innerBlocks": []
}
María Kristín ráðin verkefnastjóri vegna Rannsóknaseturs skapandi greina - Skessuhorn