Fréttir

true

Skagamenn töpuðu gegn Selfossi í körfunni

Skagamenn töpuðu þriðja leiknum í röð þegar þeir tóku á móti Selfyssingum í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu af krafti og skoruðu fyrstu sjö stigin en Skagamenn náðu að minnka muninn í tvö stig um miðjan fyrsta leikhluta. Selfyssingar voru þó alltaf yfir en aðeins þriggja stiga munur var á milli…Lesa meira

true

Stofnfundur ADHD Vesturlands

Stofnfundur fyrir ADHD Vesturland verður næstkomandi mánudag, 11. október en um er að ræða útibú frá ADHD samtökunum. En þess ber að geta að um þrjú þúsund einstaklingar, bæði fullorðnir og börn, eru nú á biðlista eftir greiningu. Um helmingur hjá hinu opinbera og helmingur hjá einkastofum. Stofnfundurinn fer fram við Grunnskólanum í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Framkvæmdum lýkur senn við Faxabraut

Nú er verið að leggja bundið slitlag á þann hluta Faxabrautar sem liggur á milli Jaðarsbrautar og Faxatorgs. Það er fyrirtækið Borgarverk sem vinnur verkið. Að sögn Kristins Sigvaldasonar, sviðsstjóra hjá Borgarverki er áætlað að verkinu ljúki í kringum 20. október næstkomandi. Íbúum við Sandabraut og Faxabraut ætti því að vera létt því talsvert hefur…Lesa meira

true

James Bond og Ari Eldjárn væntanlegir í Bíóhöllina í október

Bíóhöllin á Akranesi hefur að undanförnu verið að undirbúa endurkomu sína inn á afþreyingarmarkaðinn eftir að Kórónuveirufaraldurinn lamaði alla slíka starfsemi fyrir um 18 mánuðum síðan. Ísólfur Haraldsson rekstraraðili Bíóhallarinnar sagði í samtali við Skessuhorn að til að byrja með verði reynt að hafa sýningar á sunnudögum. Svokallaðir bíósunnudagar með barnamyndum að deginum til og…Lesa meira

true

Fimm í einangrun á Vesturlandi

Fimm eru nú í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19, þrír í Borgarnesi og tveir á Akranesi. Þá eru tíu í sóttkví í landshlutanum, fjórir á Akranesi, fjórir í Borgarnesi og tveir í Stykkishólmi. Samkvæmt uppfærðum tölum á Covid.is greindust 53 með kórónuveirusmit innanlands í gær og átta liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar, engin á…Lesa meira

true

Hólmfríður Árnadóttir hefur einnig kært kosningarnar til Alþingis

Undirbúningskjörbréfanefnd fundaði í þriðja sinn nú í morgun en þeir fimm frambjóðendur sem misstu jöfnunarsæti sitt á Alþingi eftir seinni talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi hafa nú allir lagt fram kæru vegna kosninganna. Þau Guðmundur Gunnarsson, frambjóðandi Viðreisnar, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Samfylkingar, kærðu kosningarnar til Alþingis á mánudaginn. Þá skilaði Lenya Rún Taha Karim,…Lesa meira

true

Oft verið betri laxveiði í landshlutanum

Nú er skrýtið sumar á enda,  laxinn var víða tregur að taka agn veiðimanna og hreinlega áhugalaus sums staðar þó nokkrar veiðiár hafi bætt við sig á milli ára. En þó var töluvert af fiski víða og það styttist í næsta veiðisumar og nýjar laxagöngur. „Það veiddist 161 lax hjá okkur og um 200 bleikjur,“…Lesa meira

true

Útboð á byggingarrétti á Sementsreit

Akraneskaupstaður auglýsir í dag útboð á byggingarrétti á sex lóðum á Sementsreit á Akranesi. Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á þremur hæðum auk bílakjallara, á fjórum lóðum á uppbyggingarreit D og á tveimur lóðum á uppbyggingarreit C. Verður öllum lóðum úthlutað til sama aðila. Það er nú komið að því að hefja uppbyggingu…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir norðan

Snæfellstúlkur sóttu lið Þórs frá Akureyri heim í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell náði naumum sigri í fyrsta leik á útivelli gegn KR en átti við ofurefli að etja í leiknum í gær og lokatölur leiksins 79-67 Þór í vil. Snæfellsstúlkur byrjuðu þó leikinn betur og voru komnar í 1-9 eftir rúmlega…Lesa meira

true

María Kristín ráðin verkefnastjóri vegna rannsóknaseturs skapandi greina

María Kristín Gylfadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra vegna rannsóknaseturs skapandi greina við Háskólann á Bifröst. En rannsóknasetrið var sett á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Háskólans á Bifröst er starfsferill Maríu rakinn. Þar segir að María hafi starfað í meira en tvo áratugi við menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknartengd…Lesa meira