Fréttir

true

Matreiðslumenn í múrvinnu

Það var mikill hamagangur í öskjunni á Grundargötu í Grundarfirði þegar ljósmyndara Skessuhorns bar að garði. Þar mátti sjá matreiðslumenn og þjóna af veitingastaðnum Bjargarsteini vera að steypa gangstéttar við Grundargötuna. Það þarf nú svo sem ekki að leita langt til að fá eðlilegar skýringar á þessu, en Guðbrandur Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður og einn af…Lesa meira

true

Óvæntur glaðningur með fé af fjalli

Litlu mátti muna í síðustu viku, þegar Jónas bóndi á Hömrum í Haukadal renndi í hlað heima hjá sér, en tveir hrafnar vomuðu yfir fénu á heimatúninu. Kom í ljós að ær ein á bænum var að bera, en það er nú ekki algengt í byrjun október. Krummarnir, sem greinilega höfðu hugsað sér gott til…Lesa meira

true

Tafir í göngunum næstu nótt

Tafir gætu orðið á umferð um Hvalfjarðargöng næstu nótt, aðfaranótt 8. október, vegna vinnu í göngunum. Á vef Vegagerðarinnar eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát á leið sinni um göngin á þessum tíma.Lesa meira

true

Jarðskjálfti á Vesturlandi í morgun

Jarðskjálfti mældist á Vesturlandi klukkan korter fyrir tíu í morgun. Í færslu sem Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands birti á Facebook fyrr í dag segir að skjálftinn hafi verið í eldstöðvakerfi Ljósufjalla og átt upptök sín 5 km austur af Langavatni á Mýrum. Er þetta sagt vera til marks um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu á þessu…Lesa meira

true

Búkalú á morgun

Annað kvöld verður Búkalú sýning á Söguloftinu í Borgarnesi. Um er að ræða glæsisýningu Margrétar Maack og er þetta í annað sinn sem hún kemur með sýningu á Söguloftið. Þessi sýning er þó alveg ný, með nýju fólki og nýjum atriðum. „Þetta er ástríðuverkefni hjá mér en ég hef verið að skemmta í kabarett víðs…Lesa meira

true

Býr til skart og lítil málverk

Laugardaginn 2. október síðastliðinn hélt listakonan Michelle Bird sína mánaðarlegu sýningarröð á heimili sínu í Borgarnesi sem hún umturnar í listagallerí. Sýningarnar eru einungis einn dag hverju sinni og koma allskonar listamenn úr öllum áttum á heimili Michelle til að sýna list sína í hinum ýmsu formum. Þennan laugardag var Lara Becker að sýna verkin…Lesa meira

true

Heildarframlög jöfnunarsjóðs

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Þar kom fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi verið um 53,4 milljarðar króna á síðasta ári. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í ávarpi sínu á fundinum að sveitarfélögin séu nú að njóta umfangsmikilla aðgerða ríkisins vegna heimsfaraldursins og að þær hafi með beinum eða óbeinum hætti…Lesa meira

true

Gul viðvörun við Breiðafjörð í kvöld

Gul viðvörun er víða um land í dag og fram á morgundag. Á Vesturlandi nær viðvörunin til Breiðafjarðar og tekur hún gildi kl. 21:00 í kvöld og varir til kl. 5:00 í fyrramálið. Þar er spáð norðaustan 18-23 m/s og hviðum um 35 m/s. Takmarkað skyggni vegna rigningar, einkum á fjallvegum. Veðurstofa Íslands segir að…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik

Meistaraflokkur kvenna í Skallagrími hófu tímabilið í gærkvöldi með tapi gegn suðurnesjaliðinu Keflavík, í Keflavík. Leikurinn var jafn framan af og það var ekki fyrr en um miðbik annars leikhluta að heimastúlkur fóru að skríða fram úr þeim grænklæddu. Eftir hálfleik juku Keflvíkingar enn fremur í forskot sitt og endaði leikurinn í 16 stiga sigri…Lesa meira

true

Nýliðakvöld Slökkviliðs Borgarbyggðar

Slökkvilið Borgarbyggðar auglýsir á vef Borgarbyggðar nýliðakvöld sem haldið verður þann 25. október. Í auglýsingunni segir að slökkviliðið leiti að öflugum einstaklingum, 20 ára og eldri af öllum kynjum til að ganga til liðs við hópinn. Lausar stöður í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Reykholti og á Bifröst. Kynningarkvöld á starfsemi slökkviliðsins verður mánudagskvöldið 25. október…Lesa meira