
Ljósm. úr safni
Heildarframlög jöfnunarsjóðs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Þar kom fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi verið um 53,4 milljarðar króna á síðasta ári. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í ávarpi sínu á fundinum að sveitarfélögin séu nú að njóta umfangsmikilla aðgerða ríkisins vegna heimsfaraldursins og að þær hafi með beinum eða óbeinum hætti orðið til þess að útkoma sveitarfélaganna hafi verið í samræmi við fjárhagsáætlanir á síðasta ári. „Það sama á við um Jöfnunarsjóð. Tekjurnar aukast um meira en 6% milli áranna 2019 og 2020. Þetta sýnir að okkur tókst að verja sjóðinn og tryggja lögbundið hlutverk hans,“ sagði Sigurður Ingi. Hann segir þó að tekjur Jöfnunarsjóðs gætu orðið minni en í fyrra en að það komi betur í ljós þegar árið verður gert upp. Þá sagði hann að víða væri komin góður gangur í atvinnulífið aftur og benti þar á ferðaþjónustuna. „Ég staðfesti nýlega endurskoðaða áætlun fyrir útgjaldarjöfnunarframlög ársins og þar bættist milljarður við. Við getu því leyft okkur að vera bjartsýn,“ segir Sigurður Ingi.\r\n\r\nGuðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði, fór í ávarpi sínu yfir störf sjóðsins og ársreikning síðasta árs. Eins og fram hefur komið var heildarframlag Jöfnunarsjóðs 53,4 milljarðar króna árið 2020 og að sögn Guðna var tekjuafgangur sjóðsins 48 milljónir á árinu. Skipti þar viðbótarframlag ríkissjóðs sköpum. En viðbótarframlögum var varið þannig að 670 m.kr. fóru í að koma til móts við lækkun framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk. 720 m.kr. fóru til sveitarfélaga þar sem rekstrarkostnaður jókst vegna fjárhagsaðstoðar, 500 m.kr fóru til sveitarfélaga sem voru að glíma við lækkun útsvars og 250 m.kr var varið til sameininga sveitarfélaga.\r\n\r\nHér má sjá heildarframlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga á Vesturlandi:\r\n\r\nAkraneskaupstaður – 838.902.398 kr.\r\n\r\nSkorradalshreppur – 0 kr.\r\n\r\nHvalfjarðarsveit – 0 kr.\r\n\r\nBorgarbyggð – 1.005.546.684 kr.\r\n\r\nGrundarfjörður – 235.955.231 kr.\r\n\r\nHelgafellssveit – 24.719.179 kr.\r\n\r\nStykkishólmur – 274.980.725 kr.\r\n\r\nEyja- og Miklaholtshreppur – 54.678.718 kr.\r\n\r\nSnæfellsbær – 472.039.241 kr.\r\n\r\nDalabyggð – 311.971.163 kr.",
"innerBlocks": []
}