{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gul viðvörun er víða um land í dag og fram á morgundag. Á Vesturlandi nær viðvörunin til Breiðafjarðar og tekur hún gildi kl. 21:00 í kvöld og varir til kl. 5:00 í fyrramálið. Þar er spáð norðaustan 18-23 m/s og hviðum um 35 m/s. Takmarkað skyggni vegna rigningar, einkum á fjallvegum. Veðurstofa Íslands segir að á meðan veðrið gengur yfir geti verið varasamt að vera á ferðinni á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Er fólk einnig hvatt til að ganga frá öllum lausum munum.",
"innerBlocks": []
}