Guðbrandur Gunnar Garðarsson eigandi Bjargarsteins og matreiðslumaður var reffilegur við steypustörf þennan mánudagsmorgun. Ljósm. tfk

Matreiðslumenn í múrvinnu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var mikill hamagangur í öskjunni á Grundargötu í Grundarfirði þegar ljósmyndara Skessuhorns bar að garði. Þar mátti sjá matreiðslumenn og þjóna af veitingastaðnum Bjargarsteini vera að steypa gangstéttar við Grundargötuna. Það þarf nú svo sem ekki að leita langt til að fá eðlilegar skýringar á þessu, en Guðbrandur Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður og einn af eigendum Bjargarsteins, er tengdasonur Þorkels Gunnars Þorkelssonar múrarameistara sem er með þetta verk. Þar sem veitingastaðurinn Bjargarsteinn er lokaður á mánudögum og þriðjudögum þótti Gunna Múr tilvalið að fá tengdasoninn og hans starfsfólk til að hlaupa undir bagga með honum, enda margir rúmmetrar af steypu sem áttu eftir að fara niður.",
  "innerBlocks": []
}
Matreiðslumenn í múrvinnu - Skessuhorn