
Skagastrákarnir Helgi Arnar Jónsson og Alexander Örn Kárason stóðu sig vel á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð í síðustu viku. Helgi keppti í -83 kg flokki og bætti hann sig í öllum greinum. Hann setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju þegar hann lyfti 235 kg og í réttstöðulyftu þegar hann náði 270 kg upp.…Lesa meira








