
Þórkatla Þyrí Sturludóttir vann gull í C flokki.
Klifurfélag ÍA stóð sig vel á Íslandsmeistaramótinu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íslandsmeistaramótið #3 í klifri fór fram helgina 25. og 26. september hjá Klifurfélagi Reykjavíkur í Klifurhúsinu. Fjölmennur hópur frá Klifurfélagi ÍA tók þátt í mótinu en um var að ræða keppendur sem tóku þátt í B- og C flokki. Frá þessu segir á fésbókarsíðu klifurfélagsins en B flokkur félagsins hóf keppni á laugardeginum og voru leiðir mótsins í erfiðari kantinum og því var lítið um toppa. Í kvennaflokki var einungis ein leið toppuð og því réðu tilraunir í bónusa úrslitum og þar náði Sylvía Þórðardóttir bronsi fyrir ÍA. Í karlaflokki var Elís Gíslason frá KfR í sérflokki og toppaði allar leiðir en baráttan um annað og þriðja sætið var mjög hörð. Þar fór svo að Sverrir Elí Guðnason frá ÍA bjargaði deginum með frábærum toppi í síðustu leið og landaði bronsverðlaunum með tveimur toppum í farteskinu.\r\n\r\nÁ sunnudeginum fór síðan fram seinni hluti mótsins, um morguninn klifruðu yngri flokkar og eftir hádegið fór C flokkur af stað. Þar landaði Þórkatla Þyrí Sturludóttir gulli fyrir ÍA með frábæru klifri þar sem hún toppaði sjö af átta leiðum mótsins. Glæsilegur C flokkur hjá Klifurfélagi ÍA sem á eflaust eftir að gera góða hluti á næstu misserum. Fram undan hjá Klifurfélagi ÍA á Smiðjuloftinu er Íslandsmeistaramótið í línuklifri og Hrekkjavökumót ÍA í lok október og svo Jólamót ÍA í desember.\r\n\r\nÞá má einnig geta þess að stofnþing Klifursambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 27. september síðastliðinn. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 34 talsins en Manuela Magnúsdóttir var kjörin fyrsti formaður Klifursambandsins. Klifurfélag Akraness er aðili að þessu nýja sérsambandi og á fulltrúa í varastjórn en það er Arnór Már Guðmundsson",
"innerBlocks": []
}