
Skjáskot af færslu sem Lenya Rún Taha Karim skrifaði á Twitter fyrr í dag.
Enn eru kærur að berast vegna endurtalningar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lenya Rún Taha Karim, sem skipaði þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 25. september síðastliðnum, hefur skilað inn kæru til kjörbréfanefndar vegna endurtalningar í Norðvesturkjördæmi. En Lenya var inni sem þingmaður eftir að lokatölur voru birtar á sunnudagsmorgni 26. september, en datt út eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún er nú fjórði frambjóðandinn af þeim sem duttu út eftir endurtalninguna sem hefur lagt inn kæru vegna málsins. En Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi Miðflokksins, hefur kært kosningarnar til lögreglu og Guðmundur Gunnarsson, frambjóðandi Viðreisnar, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar hafa bæði lagt inn kæru til kjörbréfanefndar. Þá hefur Magnús D. Norðdahl, frambjóðandi Pírata í Norðvesturkjördæmi, einnig skilað inn kæru til kjörbréfanefndar vegna málsins. Lenya sagði í færslu á Twitter áðan að „ef að það verður ekki uppkosning eða endurkosning á landsvísu er lágmark að fyrri, óspilltari talningi gildi.“\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}