Fréttir

true

Lét drauminn um bestu vinnu í heimi rætast

„Ég hef horft á þættina Top Gear í örugglega tuttugu ár og lengi haldið því fram að þeir sem sjá um þá þætti séu í bestu vinnu í heimi. Ég áttaði mig á að ég yrði aldrei ráðinn í svona vinnu nema ég myndi búa hana til sjálfur,“ segir James Einar Becker sem nú hefur…Lesa meira

true

Landsæfing björgunarsveita Landsbjargar var um helgina

Slysavarnafélagið Landsbjörg hélt landsæfingu björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Þar kom björgunarsveitafólk af öllu landinu saman og æfði fjölbreytt verkefni bæði á landi og á sjó. Meðal verkefna voru björgun í fjalllendi, leit að týndu fólki, fyrsta hjálp, sporrakning, sjóbjörgun og köfun. Æfingin var unnin í samstarfi við aðra viðbragsaðila og var meðal annars æft…Lesa meira

true

Innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur boðað að innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verði haldinn í byrjun nóvember. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja ára, eða kr. 13.396 á ærgildið. Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. Sauðfjárbændur sem eiga 100 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra eiga forgang…Lesa meira

true

Helga Margrét ráðin framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands

Helga Margrét Friðriksdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi. Hún tekur við af Áslaugu Þorvaldsdóttur sem hóf fyrst störf hjá Landnámssetrinu vorið 2009, fyrst í uppvaskinu og núna síðast sem framkvæmdastjóri. Nú tekur Helga Margrét við keflinu og er gífurlega spennt fyrir nýja hlutverkinu. „Það er búið að ganga ótrúlega vel og…Lesa meira

true

Haustþing SSV í síðustu viku

Haustþing Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í Árbliki í Dölum síðastliðinn miðvikudag. Þar voru m.a. saman komnir fulltrúar sveitarfélaganna á Vesturlandi, starfsfólk SSV, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og fleiri góðir gestir. Blaðamaður Skessuhorns var á staðnum og segir frá því helsta sem kom fram á fundinum í Skessuhorni sem kom…Lesa meira

true

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes verði fyrirmynd fyrir önnur svæði

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes, hafa undirritað samning um stuðning við áframhaldandi þróun svæðisgarðs á Snæfellsnesi. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og atvinnulífs á svæðinu og stuðlar að efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum ávinningi heimafólks á Snæfellsnesi. Með samningnum er lögð áhersla á að unnið verði að því að…Lesa meira

true

Engin breyting á takmörkunum til 20. október

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur fallist á tillögu Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna kórónufaraldursins. Ný reglugerð gildir í tvær vikur, til miðvikudagsins 20. október. Þórólfur vildi framlengja takmarkanir um einn mánuð. Reglugerðin kveður meðal annars á um 500 manna fjöldatakmörk á samkomum og takmarkanir á afgreiðslutíma skemmtistaða. Hún kemur í stað…Lesa meira

true

Úrvalsdeildirnar í körfuknattleik fá nýtt nafn

Haukar og Njarðvík koma til með að lyfta stóru dollunni í lok tímabils næsta vor ef marka má spá félaganna í Subway deildinni. Úrvalsdeildir karla og kvenna munu bera nafnið Subway í vetur en KKÍ og Subway hafa gert með sér samstarfssamning fyrir tímabilið 2021-2022. Þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Sverrir Berg Sverrisson,…Lesa meira

true

Innkalla kjúkling

Matvælastofnun hefur innkallað eina framleiðslulotu af kjúklingi frá matvælafyrirtækinu Matfugli, merktum Ali, Bónus eða FK. Grunur er um salmonellusmit í kjúklingnum. Þeir sem hafa keypt kjúkling úr þessari framleiðslulotu, með rekjanleikanúmeri, geta skilað honum í viðkomandi verslun eða til Matfugls ehf. í Mosfellsbæ. Innköllunin á við um eftirfarandi framleiðslulotu: Vöruheiti: Ali, Bónus, FK Framleiðandi: Matfugl…Lesa meira

true

Búkalú á Söguloftinu á föstudaginn

Glæsisýning Margrétar Erlu Maack snýr aftur eftir barnsburð, heimsfaraldur og gott hlé. Árið 2019 kom sýningin Búkalú síðast í heimsókn á Söguloftið og hefur næstu sýningu því verið beðið með mikilli eftirvæntingu! Með í för eru bestu, skemmtilegustu, fegurstu og fyndnustu kabarettlistamenn landsins ásamt erlendum gestum. Sýningin blandar saman burlesque, kabarett, dragi og sirkus svo…Lesa meira