Ljósm. úr safni/ sm

Innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur boðað að innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verði haldinn í byrjun nóvember. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja ára, eða kr. 13.396 á ærgildið. Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði.\r\n\r\nSauðfjárbændur sem eiga 100 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra eiga forgang að öllu greiðslumarki sem í boði er á markaðnum, þar af 60% til þeirra sem eiga 200 ær eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,6 eða hærra. Skiptist það hlutfallslega á milli þeirra sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjölda fjár og ásetningshlutfall. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til þeirra sem eru í forgangshópi verður boðið öðrum umsækjendum.\r\n\r\nMeð beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja veðbókarvottorð, staðfesting á eignarhaldi lögbýlis og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa lögbýlisins. Kaupandi greiðslumarks nýtir það frá og með 1. janúar 2022. Opnað hefur verið fyrir tilboð fyrir kaup og sölu greiðslumarks og skal þeim skilað rafrænt í gegnum afurd.is. Tilboðsfrestur er til og með 1. nóvember næstkomandi.",
  "innerBlocks": []
}
Innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár - Skessuhorn