Úrvalsdeildirnar í körfuknattleik fá nýtt nafn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Haukar og Njarðvík koma til með að lyfta stóru dollunni í lok tímabils næsta vor ef marka má spá félaganna í Subway deildinni. Úrvalsdeildir karla og kvenna munu bera nafnið Subway í vetur en KKÍ og Subway hafa gert með sér samstarfssamning fyrir tímabilið 2021-2022. Þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Sverrir Berg Sverrisson, framkvæmdastjóri Subway, undirrituðu samstarfssamning í dag á kynningarfundi félaganna fyrir upphaf deildanna sem hefjast á morgun hjá konunum og á fimmtudag hjá körlunum.\r\n\r\nSkallagrími spáð falli\r\n\r\nStúlkurnar í Skallagrími fá falleinkunn frá félagsliðum sambandsins. Þeim er spáð áttunda og neðsta sætinu í Subway deildinni og þar með falli. Töluverð hreyfing hefur verið á hópi Skallagríms frá síðasta tímabili, bæði á leikmönnum og þjálfurum. Skallagrímur teflir fram ungu liði í ár en meðalaldur leikmanna er 20,5 ára og er helmingur hópsins 15 ára. Fyrsti leikur Skallagríms verður gegn Keflavík á morgun kl. 19:15.\r\n\r\nEngum Vesturlandsliðum spáð topp sæti\r\n\r\nLið Snæfells í fyrstu deild kvenna er ekki spáð góðu gengi í vetur ef marka má spá félagsliðanna. Ætlað er að þær endi í níunda sæti í lok tímabils sem er þó ekki neðsta sætið. Lið Vestra frá Ísafirði er spáð neðsta sætinu og Fjölni B því næst neðsta. Karla megin er Haukum spáð efsta sætinu í fyrstu deildinni, en þeir eru nýliðar í deildinni eftir fall úr úrvalsdeild á síðasta tímabili. Þar næst koma Hattarmenn. Skallagrími er spáð sjötta sætinu í vetur en það eru Skagamenn sem fá fallsætið en þeir þáðu boð í fyrstu deildina sem Reynir Sandgerði lét frá sér fyrir leiktíðina sem nú er nýhafin.",
  "innerBlocks": []
}
Úrvalsdeildirnar í körfuknattleik fá nýtt nafn - Skessuhorn