Búkalú á Söguloftinu á föstudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Glæsisýning Margrétar Erlu Maack snýr aftur eftir barnsburð, heimsfaraldur og gott hlé. Árið 2019 kom sýningin Búkalú síðast í heimsókn á Söguloftið og hefur næstu sýningu því verið beðið með mikilli eftirvæntingu!\r\n\r\nMeð í för eru bestu, skemmtilegustu, fegurstu og fyndnustu kabarettlistamenn landsins ásamt erlendum gestum. Sýningin blandar saman burlesque, kabarett, dragi og sirkus svo úr verður einstakur fullorðinskokkteill. Fram koma: Kabafrettan Bibi Bioux, húllabomban Bobby Michelle, sirkusfolinn Daniel Pilkington, skoska boylesque-undrið Tom Harlow, burlesqueskvettan Kitty Curv og Margrét Erla sjálf.\r\n\r\nSýningin er bönnuð innan 20 ára og hentar ekki þeim sem hræðast undur mannslíkamans. Hún hentar einstaklega vel fólki sem tekur lífinu létt, en fíflagangi grafalvarlega.\r\n\r\nMiðaverð er 3900 krónur og miðasalan er á tix.is\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Búkalú á Söguloftinu á föstudaginn - Skessuhorn