
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Engin breyting á takmörkunum til 20. október
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur fallist á tillögu Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna kórónufaraldursins. Ný reglugerð gildir í tvær vikur, til miðvikudagsins 20. október. Þórólfur vildi framlengja takmarkanir um einn mánuð. Reglugerðin kveður meðal annars á um 500 manna fjöldatakmörk á samkomum og takmarkanir á afgreiðslutíma skemmtistaða. Hún kemur í stað fyrri reglugerðar sem gilti til miðnættis.\r\n\r\nNærri eitt þúsund manns eru nú í sóttkví á Akureyri þar sem 78 manns hafa greinst með kórónuveiruna. Á Húsavík eru fimm smit og rúmlega tvö hundruð í sóttkví. Flestir hinna smituðu eru á grunnskólaaldri og skólastarf því víða skert á svæðinu.",
"innerBlocks": []
}