
Ljósm. Slysavarnafélagið Landsbjörg
Landsæfing björgunarsveita Landsbjargar var um helgina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slysavarnafélagið Landsbjörg hélt landsæfingu björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Þar kom björgunarsveitafólk af öllu landinu saman og æfði fjölbreytt verkefni bæði á landi og á sjó. Meðal verkefna voru björgun í fjalllendi, leit að týndu fólki, fyrsta hjálp, sporrakning, sjóbjörgun og köfun.\r\n\r\nÆfingin var unnin í samstarfi við aðra viðbragsaðila og var meðal annars æft með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Um 200 manns komu að æfingunni sem var skipulögð af félögum á suðvesturhorninu, þá gerðu unglingar úr unglingastarfi félagsins og félagar í slysavarnadeildum æfinguna mögulega með því að leika sjúklinga og sáu einnig til þess að allir voru vel nærðir.\r\n\r\nEftir að hafa leyst verkefni víða á höfuðborgarsvæðinu yfir daginn komu allir þátttakendur saman og æfðu viðbrögð við stóru hópslysi. Æfingunni lauk svo með grillveislu áður en hóparnir héldu til síns heima eftir ánægjulegan dag. Meðfylgjandi eru myndir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu af landsæfingunni sem fram fór á laugardaginn.",
"innerBlocks": []
}