Alþingishúsið við Austurvöll. Ljósm. Stjórnarráðið/ Hari.

Kærur halda áfram að berast

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undirbúningskjörbréfanefnd kom saman í annað sinn nú klukkan eitt í dag. Fulltrúar Landskjörstjórnar kynna á fundinum greinargerð stjórnarinnar frá fundi hennar í liðinni viku. Ljóst er að nefndarmenn undirbúningskjörbréfanefnd eiga verk fyrir höndum en fjórar kærur hafa borist vegna kosninganna 25. september síðastliðinn og fleiri kærur gætu enn borist. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá lagði Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, fram kæru til Alþingis vegna endurtalningar í geymslu á kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Í byrjun vikunnar lögðu Guðmundur Gunnarsson, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir frambjóðandi Samfylkingar, fram kæru til Alþingis. En þau voru bæði inni sem þingmenn eftir fyrri talningu en duttu út eftir þá seinni. Þá hefur Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi Miðflokksins, lagt fram kæru til lögreglu auk þess sem hann sagði í samtali við fréttastofu RÚV að hann ætlar einnig að leggja fram kæru til Alþingis. En líkt og Guðmundur og Rósa Björk var Karl Gauti inni sem þingmaður að morgni sunnudagsins 26. september en datt út eftir endurtalningu. Hólmfríður Árnadóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, hefur einnig gefið það út að hún íhugi að kæra málið en hún datt einnig út sem jöfnunarþingmaður eftir seinni talningu. Þá kemur fram í frétt á RÚV í hádeginu í dag að dómsmálaráðuneytinu hefur borist kæru frá almennum borgara en sá kærði framkvæmd kosninganna til lögreglu.",
  "innerBlocks": []
}
Kærur halda áfram að berast - Skessuhorn