Helgi Arnar Jónsson bætti sig um 29,5 kg á HM unglinga í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð. Ljósm. Kraftlyftingasamband Íslands

Kröftugir Skagastrákar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagastrákarnir Helgi Arnar Jónsson og Alexander Örn Kárason stóðu sig vel á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð í síðustu viku. Helgi keppti í -83 kg flokki og bætti hann sig í öllum greinum. Hann setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju þegar hann lyfti 235 kg og í réttstöðulyftu þegar hann náði 270 kg upp. Í bekkpressu lyfti hann 132,5 kg. Samtals lyfti Helgi því 637,5 kg sem er persónuleg bæting um 29,5 kg. Dugði það honum til að ná 10. sæti á mótinu.\r\n\r\nAlexander keppt í -93 kg flokki. Hann sett nýtt Íslandsmet í tveimur flokkum og Íslandsmet unglinga í samanlagðri þyngd. Í hnébeygju setti hann Íslandsmet í opnum flokki þegar hann lyfti 257,5 kg. Þá setti hann Íslandsmet unglinga í bekkpressu þegar hann lyfti 190 kg og dugði það honum til að ná silfrinu í þeirri grein. Í réttstöðu tók hann upp 262,5 kg. Samanlagt lyfti Alexander því 710 kg sem er persónuleg bæting og nýtt Íslandsmet í flokki unglinga. Hafnaði Alexander í 12 sæti í sínum flokki.",
  "innerBlocks": []
}
Kröftugir Skagastrákar - Skessuhorn