Ljósm. vaks

Börn 12 ára og yngri mega leika úti til klukkan átta á kvöldin

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú þegar vetur fer að ganga í garð og myrkrið að minna aðeins á sig þá er upplagt að rifja aðeins upp þær útivistarreglur barna og unglinga sem eru í gildi. Frá tímabilinu 1. september til 1. maí eiga öll börn tólf ára og yngri að vera komin heim fyrir klukkan átta á kvöldin en þau sem eru 13-16 ára ekki seinna en tíu að kveldi. Reglurnar miðast við fæðingarár barnanna. Markmiðið með útivistarreglunum er að stuðla að heilbrigðu umhverfi fyrir börn og unglinga. Reglurnar eru fyrst og fremst settar til verndar börnum og stuðla að því að þau séu ekki ein og eftirlitslaus eftir að rökkva tekur.\r\n\r\nAllir foreldrar vilja börnunum sínum það besta. Útivistarreglurnar hjálpa foreldrum að setja börnum sínum mörk og styðja þannig við bakið á foreldrum í uppeldishlutverkinu. Því er full ástæða til að vekja athygli á gildandi reglum og hvetja foreldra til að standa saman að því að þær séu virtar. Reglurnar gilda alla daga, bæði virka daga, um helgar og alla hátíðisdaga.",
  "innerBlocks": []
}
Börn 12 ára og yngri mega leika úti til klukkan átta á kvöldin - Skessuhorn