Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi gengur vel. Ljósm. Ólafur Ragnarsson

Þjóðgarðsmiðstöð í Hellissandi orðin fokheld

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi gengur vel en framkvæmdir hófust sumarið 2020 og er byggingin nú fokheld og innivinna komin af stað. Það er verktakafyrirtækið Húsheild sem sér um framkvæmdirnar. Að sögn Ólafs Ragnarssonar, annars eiganda Húsheildar, ganga framkvæmdir mjög vel. „Staðan er bara býsna góð og það er góður gangur á verkinu. Skilatími er áætlaður um miðjan júní á næsta ári og ég sé ekki annað en að það ætti alveg að standast,“ segir Ólafur í samtali við Skessuhorn. Ólafur segir Bygginguna nokkuð flókna en húsið er 710 fermetrar að stærð og í laginu eins og skip. „það er ekki á hverjum degi sem maður er með svona verk en þetta er vel útbúið og undirbúningur góður hjá Framkvæmdasýslu ríkisins,“ segir Ólafur. Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins, sýningar- og kennsluaðstöðu og starfsmannarými. Um er að ræða tvær byggingar sem tengjast með miðrými. Í annarri byggingunni verður aðstaða fyrir daglegan rekstur þjóðgarðsins og í hinni verður það sem snýr að kennslu, fræðum og upplýsingastarfi á vegum þjóðgarðsins.",
  "innerBlocks": []
}
Þjóðgarðsmiðstöð í Hellissandi orðin fokheld - Skessuhorn