
Ljósm. aðsend
Búkalú á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Annað kvöld verður Búkalú sýning á Söguloftinu í Borgarnesi. Um er að ræða glæsisýningu Margrétar Maack og er þetta í annað sinn sem hún kemur með sýningu á Söguloftið. Þessi sýning er þó alveg ný, með nýju fólki og nýjum atriðum. „Þetta er ástríðuverkefni hjá mér en ég hef verið að skemmta í kabarett víðs vegar um heiminn. Ég byrjaði svo á þessu verkefni þegar ég var ófrísk, því ég sá fram á að ég myndi hætta að ferðast jafn mikið erlendis að sýna. Þess í stað býð ég fólki, sem mér þykir best í heimi á þessu sviði, til að koma til Íslands og sýna með íslenskum skemmtikröftum. Það kemur mér alltaf skemmtilega á óvart hvað íslenskir skemmtikraftar standa í raun framarlega á þessu sviði, þó senan hér sé ung,“ segir Margrét í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nMargrét segir fáa staði á Íslandi henta fyrir sýningar af þessu tagi en Söguloftið segir hún að henti mjög vel. „Þar stendur sviðið svona í miðjunni og gefur það okkur svo skemmtilega nánd við áhorfendur,“ segir Margrét. „En það er líka gaman að sýna þar sem aðstæðurnar henta ekki alveg, því þá fær maður tækifæri til að breyta rýmum í gamaldags kabarett klúbba í eina kvöldstund, staði sem við þekkjum kannski sem leikhús eða hreinlega sem bari,“ segir hún. En hvað er kabarett? „Við Íslendingar þekkjum þetta kannski einna helst úr kvikmyndum eins og Moulin Rouge! Þetta eru stutt grínatriði, fullorðinsgrín þar sem stundum er farið aðeins yfir strikið, en þó alltaf með mikilli gleði og blik í auga. Það góða við þetta form er að ef atriði er leiðinlegt, sem það er þó aldrei, þá kemur eitthvað annað eftir tvær mínútur. Þetta er fullkomið fyrir fólk sem er með internet athyglisspann,“ svarar Margrét og hlær. Með henni í sýningunni eru færir listamenn sem blanda saman burleski, kabarett, dragi og sirkus.\r\n\r\n„Í upphafi voru þessar sýningar gerðar fyrir karlmannsaugað en í dag eru yfir 75% miðakaupa konur. Ég held að konum þyki hressandi að sjá líkama á sviði sem þær geta speglað sig í. Í svona sýningu eru allskonar líkamar og það er líka gaman að við sýnum hvernig kvenmannslíkaminn getur verið fyndinn og skrýtinn líka, ekki bara alltaf sexí,“ segir Margrét. „Þessi list er ákveðin stúdía á kyntjáningu, undir formerkjum mikils húmors og trausts. En traust er mjög mikilvægur partur af þessu, þar sem fólk er kannski að fara úr einum hanska eða meira,“ bætir hún kímin við.\r\n\r\nSýningin er bönnuð yngri en 20 ára og hentar ekki fyrir fólk sem hræðist undur mannslíkamans en hentar vel fólki sem tekur lífinu létt. Hægt er að kaupa miða á sýninguna næsta föstudag á Tix.is og kostar hann 3.900 krónur.",
"innerBlocks": []
}