
Ljósm. af Facebook síðu Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra
Útboð á byggingarrétti á Sementsreit
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Akraneskaupstaður auglýsir í dag útboð á byggingarrétti á sex lóðum á Sementsreit á Akranesi. Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á þremur hæðum auk bílakjallara, á fjórum lóðum á uppbyggingarreit D og á tveimur lóðum á uppbyggingarreit C. Verður öllum lóðum úthlutað til sama aðila. Það er nú komið að því að hefja uppbyggingu Sementsreitsins, eftir margra ára þróun. Þá eru framkvæmdir við varnargarð og gatnagerð Faxabrautar á lokametrunum.\r\n\r\nByggingaréttur verður samtals 19.350 fermetrar, þar af íbúðir 11.450 fermetrar og kjallari/bílakjallari 7.900 fermetrar. Í auglýsingunni kemur fram að mikil áhersla verði lögð á að vel til takist með uppbyggingu mannvirkja innan reitsins. Með tilliti til þess er m.a.horft til gæða tillagna. Sá þáttur mun vega 40% á móti 60% vægi á upphæð byggingaréttar.\r\n\r\nÚtboðsgögn verða aðgengileg á rafrænu formi frá mánudeginum 11. október 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits á slóðinni www.mannvit.ajoursystem.is.\r\n\r\nMeðfylgjandi ljósmyndir birti Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Facebook síðu sinni.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-47934\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Utbod-a-byggingarretti-a-Sementsreit_1-600x337.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-47936\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Utbod-a-byggingarretti-a-Sementsreit_3-600x337.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-47937\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Utbod-a-byggingarretti-a-Sementsreit_4-600x337.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-47938\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Utbod-a-byggingarretti-a-Sementsreit_5-600x337.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}