Nestor Saa komst lítið áleiðis í leiknum í gærkvöldi. Ljósm. jho

Skagamenn töpuðu gegn Selfossi í körfunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamenn töpuðu þriðja leiknum í röð þegar þeir tóku á móti Selfyssingum í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu af krafti og skoruðu fyrstu sjö stigin en Skagamenn náðu að minnka muninn í tvö stig um miðjan fyrsta leikhluta. Selfyssingar voru þó alltaf yfir en aðeins þriggja stiga munur var á milli liðanna við flautuna, 16:19. Í öðrum leikhluta bættu gestirnir enn meira í og voru komnir með tólf stiga forystu um hann miðjann. Þeir héldu því nokkurn veginn til hálfleiks og staðan 27:38 þegar menn kíktu í klefann.\r\n\r\nSkagamönnum gekk illa að ná áttum í þriðja leikhluta, þeim gekk lítið að saxa á forystuna og munurinn var kominn í 17 stig í lok þess þriðja. Í þeim síðasta voru Skagamenn alltaf að elta og sáu litla von í því að ná þessu niður. Selfyssingar voru alltaf með yfirhöndina, sigldu þessu örugglega í höfn og lokastaðan 66:87 fyrir gestina.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skagamönnum voru þeir Cristopher Clover með 29 stig, Nestor Elijah Saa var með 9 stig og Davíð Alexander Magnússon með 8 stig. Hjá Selfyssingum voru þeir Óli Gunnar Gestsson með 23 stig, Vito Smojer var með 19 stig og Gasper Rojko með 14 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er gegn Álftanesi næsta föstudag fyrir sunnan og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn töpuðu gegn Selfossi í körfunni - Skessuhorn