Hólmfríður Árnadóttir. Ljósm. VG

Hólmfríður Árnadóttir hefur einnig kært kosningarnar til Alþingis

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undirbúningskjörbréfanefnd fundaði í þriðja sinn nú í morgun en þeir fimm frambjóðendur sem misstu jöfnunarsæti sitt á Alþingi eftir seinni talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi hafa nú allir lagt fram kæru vegna kosninganna. Þau Guðmundur Gunnarsson, frambjóðandi Viðreisnar, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Samfylkingar, kærðu kosningarnar til Alþingis á mánudaginn. Þá skilaði Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi Pírata, inn kæru til Alþingis á miðvikudaginn og nú hefur Hólmfríður Árnadóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, einnig kært kosningarnar til Alþingis. Þá hefur Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi Miðflokksins, kært kosningarnar til lögreglu en hann hefur einnig sagst ætla að leggja fram kæru til Alþingis. Að auki hafa tvær aðrar kærur borist, önnur frá Magnúsi Norðdahl, frambjóðanda Pírata í Norðvesturkjördæmi, og hin frá öðrum almennum borgara. Í samtali við RÚV í dag vildi Birgir Ármannsson, formaður undirbúningskjörbréfanefndar, ekki segja til um það hvort kjósa þyrfti aftur í Norðvesturkjördæmi. Hann segir óljóst hversu langan tíma nefndin þurfi til að ljúka sinni vinnu en segir að næsta vika muni eflaust skera úr um það.",
  "innerBlocks": []
}
Hólmfríður Árnadóttir hefur einnig kært kosningarnar til Alþingis - Skessuhorn