Mikil barátta var í leiknum í gær. Ljósm. Palli Jóh

Snæfell tapaði fyrir norðan

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfellstúlkur sóttu lið Þórs frá Akureyri heim í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell náði naumum sigri í fyrsta leik á útivelli gegn KR en átti við ofurefli að etja í leiknum í gær og lokatölur leiksins 79-67 Þór í vil. Snæfellsstúlkur byrjuðu þó leikinn betur og voru komnar í 1-9 eftir rúmlega eina mínútu með þremur þristum. Þórsstúlkur svöruðu þessu með 11:0 áhlaupi og var síðan jafnt á flestum tölum þar til Þór náði sex stiga forystu undir lok fyrsta leikhluta og staðan 24:16. Í öðrum leikhluta skoraði Snæfell fyrstu sex stigin og jöfnuðu 24:24 drifnar áfram af stórleik Sianni Martin. Þetta vakti Þórsara af stuttum blundi og þær náðu aftur vopnum sínum en munurinn fimm stig þegar flautan gall og staðan í hálfleik 36:31.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta hélt baráttan áfram, Þór náði sjö stiga forskoti en Snæfell neitaði að gefast upp og hélt vel í heimaliðið. Munurinn var kominn niður í fjögur stig um miðjan leikhlutann og á svipuðum nótum við lok hans, 55:50. Það var síðan ekki fyrr en í fjórða leikhluta að Þór bætti verulega í, keyrði upp hraðann í leiknum og nýtti sér það að Sianna var komin í villuvandræði. Þór jók við forystuna jafnt og þétt og landaði að lokum öruggum tólf stiga sigri, 79:67.\r\n\r\nHjá Snæfelli var Sianna Amari Martin langstigahæst með 40 stig og 7 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir var með 13 stig og Preslava Koleva með 6 stig og 4 fráköst. Í liði Þórs var Marín Lind Ágústsdóttir með 15 stig og 9 fráköst, Hrefna Ottósdóttir var með 14 stig og 12 fráköst og Karen Lind Helgadóttir með 12 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er gegn liði Stjörnunnar næsta þriðjudag í Stykkishólmi og hefst leikurinn klukkan 18.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfell tapaði fyrir norðan - Skessuhorn