Ísólfur Haraldsson rekstraraðili Bíóhallarinnar. Ljósm. úr safni/glh

James Bond og Ari Eldjárn væntanlegir í Bíóhöllina í október

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bíóhöllin á Akranesi hefur að undanförnu verið að undirbúa endurkomu sína inn á afþreyingarmarkaðinn eftir að Kórónuveirufaraldurinn lamaði alla slíka starfsemi fyrir um 18 mánuðum síðan.\r\n\r\nÍsólfur Haraldsson rekstraraðili Bíóhallarinnar sagði í samtali við Skessuhorn að til að byrja með verði reynt að hafa sýningar á sunnudögum. Svokallaðir bíósunnudagar með barnamyndum að deginum til og myndir fyrir þá eldri um kvöldið, síðan verði hugsanlega bætt ofan á það. Þessar sýningar hafa verið að undanförnu og verður séð til með framhaldið, þegar þessi markaður fer enn frekar af stað. Á meðan á faraldrinum stóð var þó nokkur fjöldi kvikmynda settur í streymisveitur eins og hjá á Disney+ veitunni þar sem ekkert annað var í boði. Voru þetta kvikmyndir eins og Mulan og Tom Hanks kvikmyndin Greyhound en báðar þessar kvikmyndir hefðu örugglega fengið góða aðsókn í kvikmyndahúsum ef það hefði verið í boði að sýna þær þar.\r\n\r\nNú í október verður nýjasta James Bond myndin „No Time To Die“ sýnd í Bíóhöllinni og verður hún frumsýnd í kvöld, 8. október, sama dag og almennar sýningar hefjast á Íslandi. Þá verður Ari Eldjárn með uppistand í Bíóhöllinni fimmtudaginn 28 október nk. Byrjar hann á Akranesi á ferð sinni um landið og er þetta í fyrsta sinn í tvö ár sem hann er með uppistandsýningar en uppselt er nú á þessa sýningu. Þá sagði Ísólfur að líkur væru á því að Bíóhöllin verði með viðburði í tengslum við Vökudaga og Heimaskaga verkefnið á Akranesi. Í jólamánuðinum verða Þorláksmessutónleikar Bubba og jafnvel enn frekara tónleikahald. Það er því góður hugur í Ísólfi og félögum að koma starfsemi Bíóhallarinnar í fyrra horf.",
  "innerBlocks": []
}
James Bond og Ari Eldjárn væntanlegir í Bíóhöllina í október - Skessuhorn