Lax að stökkva upp úr á. Ljósm. gb

Oft verið betri laxveiði í landshlutanum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er skrýtið sumar á enda,  laxinn var víða tregur að taka agn veiðimanna og hreinlega áhugalaus sums staðar þó nokkrar veiðiár hafi bætt við sig á milli ára. En þó var töluvert af fiski víða og það styttist í næsta veiðisumar og nýjar laxagöngur. „Það veiddist 161 lax hjá okkur og um 200 bleikjur,“ sagði Þórarinn Birgir Þórarinsson í Hvítadal þegar tíðindamaður Skessuhorns spurði um lokatölur í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. „Hjá okkur í sumar var alltaf einhver veiði,“ sagði Þórarinn enn fremur.\r\n\r\nBúðardalsá endaði í 111 löxum og fréttist af veiðimönnum sem voru þar fyrr í sumar sem fengu fimm laxa. „Það veiddust 142 fiskar hjá okkur, en ekki nema 46 laxar. Það gekk mikið af sjóbirtingi í ána,“ sagði Trausti Bjarnason á Á á Skarðsströnd, spurður um veiði í Krossá. Flekkudalsá gaf 88 laxa og síðustu tölur úr Laxá í Dölum eru 1021, en það gætu hafa bæst við nokkrir laxar. Haukadalsá endaði í 366 löxum og eitthvað veiddist af fiski í Efri-Haukadalsá, mest bleikjur. „Miðá í Dölum er skemmtileg veiðiá, bæði laxar og bleikjur,“ sagði María Gunnarsdóttir, sem var við veiðar í ánni fyrr í sumar. „Það veiddust 169 laxar og 154 bleikjur,“ sagði Fjóla Mikaelsdóttir um lokatölur úr Miðá í Dölum. „Það veiddust 103 laxar og á milli 130-140 bleikjur hjá okkur í Hörðudalsá,“ sagði Níels S. Olgeirsson á Seljalandi í Hörðudal. En mikil ánægja var með nýja veiðihúsið sem opnaði fyrir veiðimenn í sumar. En hitt hafði þjónað veiðimönnum í allavega 35 ár.\r\n\r\nStraumfjarðará endaði í 370 löxum, en litlar fréttir voru sagðar af ánni í sumar. Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur hætt með ána og aðrir tekið við rekstrinum. Haffjarðará gaf 914 laxa, sem verður að teljast gott á sex stangir, og Hítará gaf 548 laxa og eitthvað af silungi. Langá á Mýrum endaði í 832 löxum, sem eru aðeins færri laxar en fyrir ári. En eins og í Langá, sem og fleiri ám í sumar, var fiskurinn ansi tregur að taka hjá veiðimönnum. „Mér finnst Gljúfurá skemmtileg laxveiðiá,“ segir Jóhann G. Hermannsson sem var við veiðar í ánni fyrr í sumar. En Gljúfurá gaf 244 laxa og eitthvað af silungi. Straumarnir gáfu 125 laxa og helling af silungi, mest sjóbirting. Brennan gaf 112 laxa, líka silunga, og Suggi gaf 78 laxa og líka mikið af silungi. Gufuá gaf 33 laxa og eitthvað af silungi þetta sumarið.\r\n\r\n„Þetta endaði vel, sumarveiðin,“ sagði Einar Sigfússon um Norðurá, en hann hefur hætt að selja veiðileyfi fyrir veiðifélagið. Hann bætti við: „Það veiddust 1431 lax.“ En það er mikið betri veiði en fyrir ári. Sama er að segja um Þverá, en hún gaf 1377 laxa, sem er fín veiði. Grímsá endaði í 764 löxum. „Það er alltaf gaman að veiða hér,“ sagði tónlistarmaðurinn Birgir Nielsen, sem var við veiði síðustu dagana, og fékk ágæta veiði. Flókadalsá gaf 281 lax í sumar og Reykjadalsá gaf eitthvað af laxi þetta sumarið. „Andakílsá er feiknar góð veiðiá og greinilega öll að koma til eftir áfallið um árið. Við fengum fína veiði,“ sagði veiðimaðurinn snjalli Hafsteinn Már Sigurðsson, sem var að veiða í ánni undir það síðasta. Fleiri veiðimenn tóku í sama streng við Skessuhorn um ána. Andakílsá gaf 518 laxa, en árið áður voru þeir 666, bara á eina stöng. En áin er greinilega komin til baka og batinn er verulegur.\r\n\r\n„Þetta var flott sumar hjá okkur í Laxá í Leirársveit,“ sagði Ólafur Johnson þegar tíðindamaður Skessuhorns spurði um ána. Laxá í Leirársveit gaf 850 laxa, sem er töluvert betra en árið áður. Leirá er ennþá að gefa sjóbirtinga og laxa, en allt er þetta nú að taka enda veiðisumarið í ár. Það hafa veiðst bæði laxar og sjóbirtingar í Leirá í sumar.",
  "innerBlocks": []
}
Oft verið betri laxveiði í landshlutanum - Skessuhorn