Northern Wave kvikmyndahátíðin í Rifi síðar í október
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave fer fram í þrettánda sinn helgina 22.-24. október næstkomandi í Frystiklefanum í Rifi. Hátíðin er ein elsta kvikmyndahátíð landsins og hefur nú náð táningsaldri. Að sögn Daggar Mósesdóttur átti hátíðin að fara fram á sama tíma á síðasta ári en var frestað um ár vegna heimsfaraldursins.\r\n\r\nHeiðursgestur á hátíðinni í ár er stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem mun sitja fyrir svörum í sérstöku meistaraspjalli sem verður stýrt af Guðrúnu Elsu Bragadóttur kvikmyndafræðingi. Á hátíðinni verða sýndar rúmlega 60 erlendar og innlendar stuttmyndir auk íslenskra tónlistarmyndbanda. Hátíðin hefur alltaf haft sterka tenginu við tónlist og mun nú bjóða uppá tvöfalda stórtónleika með Vök og Reykjavíkurdætrum í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Miðasala á tónleikana fer fram á heimasíðu Frystiklefans https://www.thefreezerhostel.com/\r\n\r\nNorrænar Stelpur Skjóta er norræn vinnustofa fyrir ungar og upprennandi kvikmyndagerðarkonur sem fer fram samhliða hátíðinni. Markmið vinnusmiðjunar er að efla tengsl meðal ungra kvikmyndagerðarkvenna með leiðsögn frá fagmanneskju frá hverju landi. Að þessu sinni taka 15 norrænar kvikmyndagerðarkonur frá Íslandi, Grænlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Færeyjum og Noregi þátt í vinnusmiðjunni á hátíðinni.\r\n\r\nAuk þess að vera með fjölbreytt úrval vinnusmiðja, bíósýninga og tónleika býður hátíðin í ár upp á sérstaka barnadagskrá. Þar verða m.a. sýndar alþjóðlegar stuttmyndir í sundbíói í sundlauginni í Ólafsvík, boðið verður upp á stuttmyndanámskeið, Super 8 teiknimyndabíó og plakatasmiðju, þar sem krakkar geta prófað að útbúa sín eigin bíóplaköt.\r\n\r\n<em>Nánari upplýsingar á http://www.northernwavefestival.com</em>",
"innerBlocks": []
}
Northern Wave kvikmyndahátíðin í Rifi síðar í október - Skessuhorn