Nebojsa Knezevic (nr. 9) var með 13 stig í leiknum í gærkvöldi. Ljósm. glh

Skallagrímur laut í lægra haldi fyrir Hamri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímsmenn fóru yfir heiðina í gærkvöldi og léku gegn ísmönnunum í Hamri frá Hveragerði í 1. deild karla í körfuknattleik. Fyrsti leikhluti byrjaði fjörlega, nánast jafnt á öllum tölum en Skallarnir skoruðu fimm síðustu stigin og staðan 15:20 gestunum í vil. Skallagrímur hélt forystunni nánast allan annan leikhlutann en frekar lítið var um stigaskor. Leikmenn beggja liða hittu ansi illa en Hamarsmenn náðu þó að minnka muninn í eitt stig rétt fyrir hálfleik, 29:30.\r\n\r\nUm miðjan þriðja leikhluta var munurinn aðeins tvö stig og var aðeins eitt stig þegar honum lauk, 51:50. Útlit var því fyrir mikla spennu í fjórða leikhluta miðað við þróun leiksins hingað til en það varð alls ekki raunin. Hamar var fljótlega kominn með sjö stiga forystu og á þessum kafla hittu Skallarnir afar illa í sínum skotum. Undir lok leiksins reyndu þeir hvað þeir gátu til að minnka muninn en ekkert gekk og öruggur 14 stiga sigur heimamanna við lokaflautið, 78:64.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími voru þeir Simun Kovac sem var með 15 stig, Nebojsa Knezevic var með 13 stig og Arnar Smári Bjarnason með 12 stig. Hjá Hamri var Dareial Franklin langstigahæstur með 31 stig og þeir Kristijan Vladovic og Pálmi Geir Jónsson voru með 12 stig hvor.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er heimaleikur gegn Haukum í Fjósinu í Borgarnesi næsta föstudag og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur laut í lægra haldi fyrir Hamri - Skessuhorn