{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Körfuknattleiksdeild Skallagríms hélt neyðarfund í Grunnskólanum í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag þar sem framtíð deildarinnar var rædd og sömuleiðis biðlað til íbúa og stuðningsfólks Skallagríms almennt um fleiri hjálparhendur. Um 50 manns mættu á fundinn og fóru forsvarsmenn deildarinnar yfir stöðu mála; sjálfboðaliðastarf og nauðsynlega fjárþörf vegna tímabilsins sem nú er hafið en illa hefur gengið hjá deildinni að fullmanna fjáraflanir, í ráð og stjórnir.\r\n\r\nNýtt skipurit var kynnt á fundinum og var almenn ánægja með það. Með tilkomu nýs skipurits á að brjóta starfsemi deildarinnar niður í ákveðin viðráðanleg verkefni eins og fjáröflunarráð, leikjaráð, fjölmiðlaráð og svo framvegis.\r\n\r\nÞátttakendur á fundinum voru allir sammála um að leggja sitt af mörkum til að halda deildinni gangandi og búið er að manna flest ráðin. Næstu skref verða svo að fylla í þessi ráð og í kjölfarið hefja vinnu.\r\n\r\nStærsta verkefni stjórnarinnar verður hins vegar að tryggja fjármagn fyrir tímabilið. Samkvæmt stjórn kkd. Skallagríms mun deildin á næstu vikum undirbúa vinnu við stefnumótun og þá verður óskað eftir þátttöku íbúa og velunnara til að móta starfið fyrir komandi ár.\r\n\r\nÞá voru nokkrir styrktaraðilar og einstaklingar sem brugðust við kalli kkd. Skallagríms með nýjum og auknum fjárframlögum. Fyrir þá sem hafa áhuga á að verða bakhjarlar kkd. Skallagríms er hægt að hafa samband í tölvupósti: <a href=\"mailto:skallagarfa@gmail.com\">skallarkarfa@gmail.com</a>.",
"innerBlocks": []
}
Nýtt skipurit kynnt á neyðarfundi Skallagríms - Skessuhorn