
Göngustígurinn sem búið er að loka. Ljósm. vaks
Göngustíg lokað frá Merkigerði að Brekkubæjarskóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þessa dagana standa yfir framkvæmdir á Sjúkrahúsi Akraness. Núna er verið að rífa þakið á sjúkrahúsálmunni sem er næst Brekkubæjarskóla og á að byggja þar eina hæð ofan á fyrir nýja skurðstofu. Þessum framkvæmdum fylgir tilheyrandi slysahætta fyrir nemendur skólans sem og aðra vegfarendur. Til að tryggja sem best öryggi gangandi vegfarenda hefur göngustígnum sem liggur frá Merkigerði, milli sjúkrahúss og Kirkjuhvols, að Brekkubæjarskóla nú verið lokað frá og með deginum í dag. Þá er heldur ekki hægt að ganga upp akstursleiðina frá Vesturgötu og að sjúkrahúsinu. Í staðinn fyrir að nota þennan göngustíg fara nemendur skólans niður á Vesturgötu til að komast í skólann. Einnig er akstursleiðin frá Vesturgötu og upp að sjúkrahúsi og kapellu einungis fyrir starfsmenn sjúkrahússins og þá sem eiga erindi þangað.",
"innerBlocks": []
}