Fréttir

true

Eigendur hugi að velferð hrossa

Að hausti þurfa hestamenn að huga sérstaklega að velferð hrossa sem ganga úti. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að hross sem eru að fara á útigang þurfa síðla hausts að hafa gott fitulag undir húð (holdastig 3,5-4) til að auka kuldaþol þeirra og getu þeirra til að standa af sér illviðri. Fóðrun skal miða…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir á Norðurgarði í Ólafsvík

Í sumar hafa miklar hafnarframkvæmdir staðið yfir á Norðurgarðinum Ólafsvík. Hafnargarðurinn var lengdur um 100 metra og þurfti í upphafi að brjóta og fjarlæga gamla þekju og malbik. Þá var steypt rafbúnaðarhús og undirstaða fyrir ljósamöstur og polla, lögð ídráttarrör fyrir rafmagn og komið fyrir rafmagnskápum, leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum og brunahana, gróf-…Lesa meira

true

Nýr tannlæknastóll tekinn í notkun í Brákarhlíð

Nú hefur aðstöðu til tannlækninga verið komið upp í hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi og fyrsti viðskiptavinurinn mætti í nýjan tannlæknastól á föstudaginn hjá Hilmi Valssyni tannlækni. Brákarhlíð fékk styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að hefja þessar framkvæmdir. Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, segir að heimilið hafi fengið ómetanlegan stuðning við fjáröflun fyrir tannlæknastólnum. „Rótarýklúbbur Borgarness…Lesa meira

true

Ungmenni á Speedomóti í sundi

Um helgina tóku 15 krakkar frá Sundfélagi Akraness þátt í Speedomóti ÍRB sem haldið var í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Mótið var fyrir krakka 13 ára og yngri og voru þátttakendur frá Akranesi á aldrinum 8–13 ára. „Það var frábær stemning á mótinu og liðsandinn mjög góður. Krakkarnir stóðu sig frábærlega í lauginni, sýndu mikla baráttu…Lesa meira

true

Ný vitundarvakning hvetur fólk til að undirbúa efri árin

Landsmenn eru í nýrri vitundarvakningu hvattir til að huga tímanlega að eigin heilsu, félagslegum tengslum og virkni á efri árum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stendur fyrir átakinu sem er hluti af verkefninu Gott að eldast. Vitundarvakningunni er ætlað að minna á að undirbúningur fyrir efri árin hefst löngu áður en fólk lætur af störfum. Leikarinn Sigurður…Lesa meira

true

Sigríður og Hinrik kjörin í dreifbýlisráð Stykkishólms

Kosið var í dreifbýlisráð Stykkishólms síðastliðinn laugardag í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit. Sigríður Sóldal á Hólum og Hinrik Hjartarson í Lyngholti hlutu kosningu sem aðalmenn í ráðið. Varamenn þeirra verða Ásmundur Óskar Einarsson á Hólum og Álfgeir Egill Þór Marinósson á Álfgeirsvöllum. Dreifbýlisráði var komið á fót í kjölfar sameiningar Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar til að…Lesa meira

true

Söfnun Rótarýklúbbsins fyrir tannlæknastól formlega lokið

Rótarýklúbbur Borgarness ákvað fyrr á þessu ári að standa fyrir söfnunarátaki til stuðnings Hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð til að festa mætti kaup á sérbúnum tannlæknastól fyrir nýja tannlæknaaðstöðu á heimilinu. Það er til að bæta aðgengi að slíkri þjónustu fyrir heimilisfólk og aðra sem á þurfa að halda. Átakinu var hleypt af stokkunum seinni hluta sumars og…Lesa meira

true

Banaslys í Kleifá

Ökumaður bíls, sem hafnaði í Kleifá í Eyja- og Miklaholtshreppi árdegis í gær, var úrskurðaður látinn eftir að hafa verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. Farþegi í bifreiðinni slasaðist lítið en var fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur. Lögregla og Rannsóknanefnd samgönguslysa fara með rannsókn á tildrögum slyssins.Lesa meira

true

Kynnir Holts sögu á fyrirlestri í héraði

Annað kvöld, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20, mun Óskar Guðmundsson, rithöfundur í Reykholti, kynna nýútkomna bók sína; „Holts sögu – Þúsund ára sögu mannlífs undir Eyjafjöllum, klerka, kvenna og karla.“ Viðburðurinn fer fram í bókhlöðu Snorrastofu og er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði.“ Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis, veitingar í hléi. „Holts…Lesa meira

true

Leshópurinn Köttur út í mýri með afmælishátíð

Árið 2016 komu nokkrar stórhuga konur saman og ákváðu að stofna leshóp í Grundarfirði. Hópurinn dafnaði næstu árin og hefur í gegnum tíðina komið að ótal skemmtilegum viðburðum. Í tilefni af afmælinu var bæjarbúum boðið í kaffi í Sögumiðstöðinni sunnudaginn 8. nóvember. Gestir gátu komið og flett í gegnum bannaðar bækur, lestrarátaksverkefni skólabókasafnsins og að…Lesa meira