
Nýr tannlæknastóll tekinn í notkun í Brákarhlíð
Nú hefur aðstöðu til tannlækninga verið komið upp í hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi og fyrsti viðskiptavinurinn mætti í nýjan tannlæknastól á föstudaginn hjá Hilmi Valssyni tannlækni. Brákarhlíð fékk styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að hefja þessar framkvæmdir. Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, segir að heimilið hafi fengið ómetanlegan stuðning við fjáröflun fyrir tannlæknastólnum. „Rótarýklúbbur Borgarness tók af skarið og safnaði klúbburinn alls tveimur milljónum króna frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Auk þess kom framlag frá stúkum Oddfellow reglunnar á Akranesi sem styrktu verkefnið um eina milljón króna. Auk styrksins frá Rótarýklúbbnum þá hafa aðilar gefið beint til Hollvinasamtaka Brákarhlíðar, samtals tvær milljónir króna, til kaupa á tannlæknastólnum. Samtals hafa því safnast fimm milljónir sem er glæsilegt,“ sagði Inga Dóra. Hún bætir því við að Hilmir Valsson tannlæknir og Gunnhildur Magnúsdóttir aðstoðarkona hans munu nú mæta í Brákarhlíð reglulega.