
Banaslys í Kleifá
Ökumaður bíls, sem hafnaði í Kleifá í Eyja- og Miklaholtshreppi árdegis í gær, var úrskurðaður látinn eftir að hafa verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. Farþegi í bifreiðinni slasaðist lítið en var fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur. Lögregla og Rannsóknanefnd samgönguslysa fara með rannsókn á tildrögum slyssins.