Steypuvinna í gangi. Ljósmyndir: AF

Miklar framkvæmdir á Norðurgarði í Ólafsvík

Í sumar hafa miklar hafnarframkvæmdir staðið yfir á Norðurgarðinum Ólafsvík. Hafnargarðurinn var lengdur um 100 metra og þurfti í upphafi að brjóta og fjarlæga gamla þekju og malbik. Þá var steypt rafbúnaðarhús og undirstaða fyrir ljósamöstur og polla, lögð ídráttarrör fyrir rafmagn og komið fyrir rafmagnskápum, leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum og brunahana, gróf- og fínjafna undir steypu, slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.200 fermetra. Verkinu á að verða lokið fyrir næstu áramót.