
Gamli Nói hnýtir flugu í nýrri vitundarvakningu sem minnir á að með því að rækta líkama, huga og tengsl við aðra stuðlum við að betri líðan.
Ný vitundarvakning hvetur fólk til að undirbúa efri árin
Landsmenn eru í nýrri vitundarvakningu hvattir til að huga tímanlega að eigin heilsu, félagslegum tengslum og virkni á efri árum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stendur fyrir átakinu sem er hluti af verkefninu Gott að eldast. Vitundarvakningunni er ætlað að minna á að undirbúningur fyrir efri árin hefst löngu áður en fólk lætur af störfum. Leikarinn Sigurður Sigurjónsson bregður sér í gervi Gamla Nóa og sýnir á skemmtilegan hátt hvernig hægt er að undirbúa þetta nýja æviskeið. Ingeborg frænka kemur einnig við sögu. Meginboðskapurinn er einfaldur: Mikilvægt er að gera eitthvað á hverjum degi sem styrkir líkamann, ræktar hugann og eflir félagsleg tengsl.