Efri röð f.v. Helena María Jónsdóttir Stolzenwald, Selma Rut Þorkelsdóttir, Guðbjörg Jenný Ríkarðsdóttir, Rakel Birgisdóttir, Hjördís Hlíðkvist Bjarnadóttir og Heiðrún Hallgrímsdóttir. Neðri förð f.v. Gyða Rós Freysdóttir, Jónína Herdís Björnsdóttir og Guðrún Lilja Magnúsdóttir. Ljósm. tfk

Leshópurinn Köttur út í mýri með afmælishátíð

Árið 2016 komu nokkrar stórhuga konur saman og ákváðu að stofna leshóp í Grundarfirði. Hópurinn dafnaði næstu árin og hefur í gegnum tíðina komið að ótal skemmtilegum viðburðum. Í tilefni af afmælinu var bæjarbúum boðið í kaffi í Sögumiðstöðinni sunnudaginn 8. nóvember. Gestir gátu komið og flett í gegnum bannaðar bækur, lestrarátaksverkefni skólabókasafnsins og að sjálfsögðu gætt sér á gómsætum vöfflum í tilefni dagsins.