Sigríður og Hinrik kjörin í dreifbýlisráð Stykkishólms

Kosið var í dreifbýlisráð Stykkishólms síðastliðinn laugardag í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit. Sigríður Sóldal á Hólum og Hinrik Hjartarson í Lyngholti hlutu kosningu sem aðalmenn í ráðið. Varamenn þeirra verða Ásmundur Óskar Einarsson á Hólum og Álfgeir Egill Þór Marinósson á Álfgeirsvöllum.