Guðmundur Brynjúlfsson forseti Rótarýklúbbsins afhendir Ingu Dóru Hallsdórsdóttur framkvæmdastjóra Brákarhlíðar gjafabréfið.

Söfnun Rótarýklúbbsins fyrir tannlæknastól formlega lokið

Rótarýklúbbur Borgarness ákvað fyrr á þessu ári að standa fyrir söfnunarátaki til stuðnings Hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð til að festa mætti kaup á sérbúnum tannlæknastól fyrir nýja tannlæknaaðstöðu á heimilinu. Það er til að bæta aðgengi að slíkri þjónustu fyrir heimilisfólk og aðra sem á þurfa að halda. Átakinu var hleypt af stokkunum seinni hluta sumars og hefur staðið þar til nú.