Fréttir

true

Ný tækni notuð við plægingu sex jarðstrengja í einu

Þessa dagana er á vegum Rarik unnið að lagningu jarðstrengja frá Seleyri og að tengivirkinu á Vatnshömrum í Andakíl. Guðjón Bachmann stöðvarstjóri Rarik í Borgarnesi hefur umsjón með verkinu. „Framkvæmdin hefur tvíþættan tilgang. Annars vegar að færa eldri loftlínu sem liggur meðfram Skeljabrekkufjalli í jörð en hins vegar að auka afhendingargetu raforku í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Minna á stöðuleyfi fyrir gáma og báta í Grundarfirði

Grundarfjarðarbær minnir íbúa á að sækja þarf um stöðuleyfi fyrir gáma, báta og aðra lausafjármuni sem standa eiga á lóðum eða öðrum svæðum í sveitarfélaginu lengur en tvo mánuði. Stöðuleyfi gilda í eitt ár í senn og þarf að endurnýja þau árlega. Bærinn hefur nýlega lækkað gjald fyrir stöðuleyfi um 55%, úr tæplega 130 þúsund…Lesa meira

true

Verslanir færa sig um set í Hyrnutorgi

Þrjár breytingar voru nýverið gerðar í verslanamiðstöðinni Hyrnutorgi í Borgarnesi. Tvær rótgrónar verslanir; Tækniborg og Borgarsport, höfðu makaskipti á húsnæði. Þannig er Tækniborg nú flutt í mun stærra rými, en Borgarsport minnkaði við sig. Þá hefur Kaupfélag Borgfirðinga sett upp verslunina Útibúið í rýminu sem verslunin Fok var síðast, en henni var lokað í haust.…Lesa meira

true

Flutningar og sjúkdómavarnir í sauðfé og geitum

Eins og búfjáreigendur vita er landinu skipt upp í 22 varnarsvæði með svokölluðum varnarlínum sem ýmist eru girðingar eða náttúrulegar hindranir. Upphaflegur tilgangur þessa fyrirkomulags var að varna útbreiðslu sauðfjársjúkdóma sem borist höfðu með innflutningi á karakúlfé frá Þýskalandi árið 1933. Um var að ræða sjúkdómana garnaveiki og mæðiveiki (votamæði og þurramæði). Varnarhólfin voru liður…Lesa meira

true

Tíðinda að vænta af þjálfaramálum

Knattspyrnufélagið Fylkir staðfesti í gærkvöldi að Heimir Guðjónsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Fotbolti.net segir Heimi nú á leiðinni að taka við þjálfun meistaraflokks karla hjá ÍA og býst við að Skagamenn staðfesti ráðninguna hans á næstu dögum. Lárus Orri Sigurðsson lét eins og kunnugt er af störfum eftir lokaleik…Lesa meira

true

Rafmagn tekið af Mýrum í dag

Vegna tengingar á nýrri rofastöð Rarik verður rafmagnslaust á Mýrum frá klukkan 12:00 til kl. 16:00 í dag, fimmtudaginn 29. október. „Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528 9000.Lesa meira

true

Auglýsa eftir skötuframleiðendum

„Hefur þú innsýn í íslenska skötuhefð og reynslu af því að kæsa skötu? Nú leitum við að framleiðendum um allt land sem verka skötu. Ef þú þekkir vel hvernig kæsing fer fram og/eða hvernig verklagið hefur breyst í tímans rás máttu endilega heyra í okkur! Sömuleiðis ef þú veist hverjir stunda slíka framleiðslu,“ segir í…Lesa meira

true

Auglýsa eftir styrkumsóknum til menningar- og æskulýðsmála

Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði og Íþrótta- og æskulýðssjóði sveitarfélagsins vegna verkefna og viðburða sem fyrirhugaðir eru á árinu 2027. Umsóknum skal fylgja lýsing á verkefni og markmiðum þess, ásamt tíma-, verk- og kostnaðaráætlun, upplýsingum um aðra fjármögnun og þeirri styrkupphæð sem óskað er eftir. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 1. nóvember og…Lesa meira

true

Kynna fjárhagsáætlun og þjónustustefnu

Tveir opnir kynningarfundir um fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027–2030 og þjónustustefnu sveitarfélagsins verða haldnir þriðjudaginn 17. nóvember í Auðarstofu að Miðbraut 11 í Búðardal. Fyrri fundurinn hefst klukkan 17 og sá síðari klukkan 20. Sama dagskrá verður á báðum fundum. Á fundunum verður farið yfir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og fyrirhugaða þjónustu við íbúa, meðal annars í…Lesa meira

true

Velta í álframleiðslu jókst um 41% milli ára

Velta í málmframleiðslu jókst verulega í júlí og ágúst síðastliðnum og nam rúmum 76 milljörðum króna, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Það er um 41% aukning frá sömu mánuðum í fyrra þegar veltan var tæpir 54 milljarðar króna. Hærra heimsmarkaðsverð á áli skýrir stóran hluta aukningarinnar, en útflutt magn var einnig örlítið meira en á…Lesa meira