Rafmagn tekið af Mýrum í dag

Vegna tengingar á nýrri rofastöð Rarik verður rafmagnslaust á Mýrum frá klukkan 12:00 til kl. 16:00 í dag, fimmtudaginn 29. október. „Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528 9000.