Minna á stöðuleyfi fyrir gáma og báta í Grundarfirði

Grundarfjarðarbær minnir íbúa á að sækja þarf um stöðuleyfi fyrir gáma, báta og aðra lausafjármuni sem standa eiga á lóðum eða öðrum svæðum í sveitarfélaginu lengur en tvo mánuði. Stöðuleyfi gilda í eitt ár í senn og þarf að endurnýja þau árlega. Bærinn hefur nýlega lækkað gjald fyrir stöðuleyfi um 55%, úr tæplega 130 þúsund krónum í 58.727 krónur.