
Fjöldi atvinnulausra í september síðastliðnum, á aldrinum 16 til 74 ára, var 15.300 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,7%, hlutfall starfandi var 75% og atvinnuþátttaka 79,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentustig á milli ágúst og september 2026, hlutfall starfandi hækkaði um 1,2 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,4 prósentustig.Lesa meira








