
Nornaþing og fjölbreytt dagskrá í Grundarfirði
Hrekkjavakan í Grundarfirði fagnar tíu ára afmæli í ár og verður því slegið upp fjölbreyttri dagskrá fyrir unga sem aldna miðvikudaginn 28. október klukkan 17. Hátíðin hefst með nornaþingi í Samkomuhúsinu þar sem allir aldurshópar eru velkomnir. Boðið verður upp á pálínuboð þar sem gestir eru hvattir til að leggja eitthvað á sameiginlegt veisluborð, auk þess sem spákona verður á staðnum, happdrætti fyrir börnin og verðlaun veitt fyrir flottasta barnabúninginn. Þá mun skólakór grunnskólans frumflytja Hrekkjavökulag Grundarfjarðar undir stjórn Grétu Sigurðardóttur. Börn þurfa að vera í fylgd forráðamanna.