Fréttir

true

Elkem Ísland gerir nýjan raforkusamning við Landsvirkjun

Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnsverksmiðjunnar á Grundartanga. Fyrri samningur fyrirtækjanna var til 2029 en sá nýi gildir til ársins 2039. Samningsmagn er óbreytt eða 127 MW. „Viðskiptasamband fyrirtækjanna á rætur að rekja allt aftur til 1975 og Elkem er því einn af elstu stórviðskiptavinum Landsvirkjunar,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Skipulagsbreyting staðfest vegna stórfellds landeldis á Grundartanga

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar landeldisstöðvar Aurora fiskeldis ehf. á Grundartanga. Áform fyrirtækisins gera ráð fyrir allt að 28 þúsund tonna árlegri framleiðslu á laxi og er áætlaður fjárfestingarkostnaður á bilinu 25 til 30 milljarðar króna. Skipulagsbreytingin var samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 4. september síðastliðinn…Lesa meira

true

Íbúar hvattir til að hafa áhrif við gerð fjárhagsáætlunar

Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir ábendingum og tillögum frá íbúum vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027. Markmiðið er að efla íbúalýðræði og gefa bæjarbúum tækifæri til að hafa áhrif á forgangsröðun verkefna og ákvarðanir bæjarstjórnar. Íbúar eru hvattir til að koma á framfæri hugmyndum um ný verkefni, fjárfestingar og áherslur í starfsemi sveitarfélagsins. Tillögurnar geta meðal…Lesa meira

true

Raunverð íbúða lækkar og fasteignaviðskipti í lágmarki

Umsvif á fasteignamarkaði hér á landi hafa ekki verið minni í ágústmánuði í tólf ár, samkvæmt nýjum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Alls voru gerðir 727 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði í ágúst, 22% færri en í júlí og 24% færri en í sama mánuði í fyrra. Á fyrstu átta mánuðum ársins fækkaði kaupsamningum um 15% frá…Lesa meira

true

Áform um byggingu fjögurra leiguíbúða

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt að hefja undirbúning að uppbyggingu leiguíbúða í samstarfi við Bjarg íbúðafélag og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Ákvörðunin var tekin samhljóða á fundi bæjarstjórnar 15. október síðastliðinn. Bjarg íbúðafélag hefur þegar sótt um stofnframlag til HMS vegna fyrirhugaðrar byggingar raðhúss með fjórum íbúðum í Grundarfirði. Bæjarstjóra hefur verið falið að hefja samstarf…Lesa meira

true

Rauðu hjörtun lýsa á ný upp Stillholtið

Rauðu ljósahjörtun sem prýða trén við Stillholt á Akranesi eru komin á sinn stað og munu lýsa upp skammdegið næstu vikur. Uppsetning hjartanna er orðin árleg hefð og hjá mörgum marka þau upphaf aðventustemningar í bænum. Venja er að hjörtin séu komin upp áður en Vökudagar, menningarhátíð Akurnesinga, hefjast og var engin undantekning gerð í…Lesa meira

true

Mikill fjöldi umsókna í Uppbyggingarsjóð

Alls voru sendar inn 93 umsóknir um styrki úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands, en frestur til að sækja um rann út í gær. 30 umsóknir bárust um atvinnu- og nýsköpunarstyrki, 57 um menningarstyrki og sex umsóknir voru um stofn- og rekstrarstyrki lögaðila. „Mikill fjöldi umsókna endurspeglar þann kraft sem er til staðar í atvinnulífi, nýsköpun og menningarstarfi…Lesa meira

true

Íbúar Borgarbyggðar hvattir til að móta framtíðarþjónustu

Borgarbyggð boðar til fimm íbúafunda dagana 2.–4. nóvember þar sem íbúum gefst tækifæri til að hafa áhrif á mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmiðið er að þróa skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sem tekur mið af þörfum og væntingum íbúa. Á fundunum verður rætt um áherslur í þjónustu sveitarfélagsins, tækifæri til úrbóta og hvernig best megi…Lesa meira

true

Bókmenntirnar leiddu þær saman á ný

Jovana Pavlović og Katrín Jakobsdóttir skiptust á árituðum bókum Það var sameiginlegur áhugi á bókmenntum sem varð til þess að leiðir Jovönu, nýs ljóðskálds í Borgarnesi, og Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfundar, lágu saman nú á dögunum. Þær hafa þekkst um árabil í gegnum stjórnmálin en að þessu sinni voru það ekki pólitískar umræður…Lesa meira

true

KSÍ snuprar ÍA vegna tilraunaborunar á Akranesvelli

Mótanefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt að leikur ÍA og Keflavíkur í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn fari fram í Akraneshöllinni. Ástæðan er sú að aðalvöllur Skagamanna er óleikhæfur eftir jarðvegsrannsóknir sem gerðar voru vegna fyrirhugaðrar lagningar gervigrass. Nefndin gagnrýnir harðlega vinnubrögð ÍA og skort á samráði við KSÍ. Ákvörðunin um undanþágu var…Lesa meira