
Hópmynd í tilefni samningsins. Ljósm. Landsvirkjun.
Elkem Ísland gerir nýjan raforkusamning við Landsvirkjun
Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnsverksmiðjunnar á Grundartanga. Fyrri samningur fyrirtækjanna var til 2029 en sá nýi gildir til ársins 2039. Samningsmagn er óbreytt eða 127 MW.