Nýi sex holu golfvöllurinn á Akranesi!

KSÍ snuprar ÍA vegna tilraunaborunar á Akranesvelli

Mótanefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt að leikur ÍA og Keflavíkur í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn fari fram í Akraneshöllinni. Ástæðan er sú að aðalvöllur Skagamanna er óleikhæfur eftir jarðvegsrannsóknir sem gerðar voru vegna fyrirhugaðrar lagningar gervigrass. Nefndin gagnrýnir harðlega vinnubrögð ÍA og skort á samráði við KSÍ. Ákvörðunin um undanþágu var ekki einróma.