
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Íbúar Borgarbyggðar hvattir til að móta framtíðarþjónustu
Borgarbyggð boðar til fimm íbúafunda dagana 2.–4. nóvember þar sem íbúum gefst tækifæri til að hafa áhrif á mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmiðið er að þróa skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sem tekur mið af þörfum og væntingum íbúa. Á fundunum verður rætt um áherslur í þjónustu sveitarfélagsins, tækifæri til úrbóta og hvernig best megi mæta þörfum samfélagsins.